mán 25. maí 2015 20:32
Ívan Guðjón Baldursson
Heimild: Sky Sports 
Sky: Rafa Benitez líklegastur til að taka við Real Madrid
Mynd: Getty Images
Rafael Benitez er talinn líklegasti arftaki Carlo Ancelotti hjá Real Madrid eftir að ítalski þjálfarinn var rekinn fyrr í dag.

Jürgen Klopp, Jorge Jesus og Zinedine Zidane eru einnig taldir mögulegir arftakar ásamt Fernando Hierro, Michael Laudrup, Paul Clement og Massimiliano Allegri.

Rafa Benitez er langlíklegastur en eftir honum kemur Jürgen Klopp sem er samningslaus eftir góð ár hjá Borussia Dortmund.

Jorge Jesus, þjálfari Benfica, er talinn þriðji líklegastur til að taka við og hinn franski Zinedine Zidane er fjórði líklegastur.

Benitez hefur stýrt liðum á borð við Valencia, Liverpool, Inter og Chelsea og er núverandi þjálfari Napoli.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner