Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   mið 25. maí 2016 11:00
Magnús Már Einarsson
Benítez verður áfram með Newcastle
Mynd: Getty Images
Sky Sports greinir frá því að Rafa Benítez verði áfram knattspyrnustjóri Newcastle á næsta tímabili.

Benítez er að ganga frá nýjum þriggja ára samningi sem verður kynntur í dag.

Benítez tók við Newcastle af Steve McClaren í lok mars og skrifaði þá undir þriggja ára samning.

Í samningnum var klásúlu um að hann mætti fara ef liðið myndi falla eins og raunin varð á dögunum.

Spánverjinn hefur þrátt fyrir það ákveðið að halda áfram með Newcastle gegn þeim skilyrðum að hann fái að stjórna því alfarið hvaða leikmenn koma til félagsins í sumar.
Athugasemdir
banner
banner