Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   mið 25. maí 2016 10:42
Magnús Már Einarsson
Granit Xhaka til Arsenal (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Arsenal hefur staðfest kaup á miðjumanninum Granit Xhaka en hann kemur til félagsins frá Borussia Mönchengladbach í Þýskalandi.

Xhaka var staddur í Englandi í síðustu viku þar sem hann fór í læknisskoðun.

Arsenal staðfesti svo á Twitter síðu sinni í dag að hann sé orðinn nýr leikmaður félagsins.

Kaupverðið hefur ekki verið gefið upp en það ku vera í kringum 35 milljónir punda.

Xhaka er 23 ára gamall en hann er fastamaður í landsliði Sviss sem fer á EM í sumar.



Athugasemdir
banner
banner