Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Jökull: Læti og stemning sem stuðningsmennirnir spúa yfir völlinn til strákanna
Helgi Fróði: Geggjað að vera í besta klúbbnum
Addi Grétars pirraður: Menn þurfa að hafa smá 'sens' fyrir því sem þeir eru að tala um
Ísak Óli: FH var langfyrsti kosturinn hjá mér
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
   mið 25. maí 2016 22:40
Arnar Helgi Magnússon
Indriði: Þú hefur ekki tíma til að svekkja þig
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Þeir skora úr sínum tveimur sénsum. Við sköpum færi til að skora en setjum hann ekki og það kostar," sagði Indriði Sigurðsson eftir 2-1 tap KR gegn Selfyssingum í 32-liða úrslitum Borgunarbikarsins í kvöld.

KR fær Val í heimsókn í Pepsi-deildinni á sunnudag og Indriði segir að ekki sé hægt að dvelja of lengi við leikinn í kvöld.

„Það sem er fínt er að það er leikur á sunnudaginn þannig að þú hefur ekki tíma til að svekkja þig. Þú þarft að byrja upp á nýtt og Íslandsmótið er ennþá í gangi og það er forgangsröðun númer eitt. Við þurfum að einbeita okkur að því."

Byrjun KR-inga hefur verið brösótt í Pepsi-deildinni og nú er liðið úr leik í Borgunarbikarnum.

„Þú þarft engan stjarneðlisfræðing til að sjá að við erum ekki ánægðir með stigin sem við höfum fengið. Í einhverjum leikjum hefðum við kannski mátt fá meira. Sex stig í fimm leikjum er of lítið en það er nóg eftir. Það eru ennþá fimmtán leikir eftir en við þurfum að fara að byrja að vinna leiki."

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner