Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 25. maí 2016 18:30
Magnús Már Einarsson
Joey Barton: Ætla að verða bestur í Skotlandi
Mynd: Getty Images
Joey Barton segist stefna á að verða besti leikmaðurinn í Skotlandi á næsta tímabili.

Hinn 33 ára gamli Barton skrifaði í gær undir tveggja ára samning við Rangers.

Barton hjálpaði Burnley upp í ensku úrvalsdeildina á dögunum en hann hefur nú ákveðið að reyna fyrir sér í Skotlandi.

„Mér fannst ég vera besti miðjumaðurinn í Championship deildinni á síðasta ári. Mér fannst frammistaða mín í 46 leikjum sanna það," sagði Barton.

„Það eru góðir leikmenn hérna (í Skotlandi). Ég er ekki að koma hingað til að verða meðalmaður. Ég er að koma hingað til að verða besti leikmaður landsins."
Athugasemdir
banner
banner
banner