Luka Kostic, þjálfari Hauka, var ekki sáttur eftir 2-1 tap gegn Víkingum í kvöld.
Hauka lentu 2-0 undir og náðu að minnka muninn í lokin, en það var ekki nóg. Luka segir að Víkingar hafi alltaf verið sterkari í leiknum.
Hauka lentu 2-0 undir og náðu að minnka muninn í lokin, en það var ekki nóg. Luka segir að Víkingar hafi alltaf verið sterkari í leiknum.
Lestu um leikinn: Haukar 1 - 2 Víkingur R.
„Mér fannst Víkingarnir alltaf vera sterkari, þeir vildu meira vinna þennan leik og við vorum ekki alveg upp á okkar besta," sagði Luka eftir leik.
„Það voru of margir leikmenn í byrjunarliðinu sem voru meiddir og voru ekki með. Ég veit ekki hvernig verður í næsta leik á móti Þór og við verðum líklega að nota einhverja stráka úr öðrum flokki."
Haukarnir virtust ekki vera sérstaklega sáttir með Erlend Eiríksson, dómara leiksins, í leiknum, en Luka fannst þó Erlendur dæma leikinn nokkuð vel.
„Við hefðum átt að fá vítaspyrnu, en annars dæmdi Erlendur virkilega vel. Þetta var bara í hita leiksins, við sjáum hlutina öðruvísi en þeir og kannski hafa þeir stundum rétt fyrir sér."
Athugasemdir