Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 25. maí 2016 09:35
Magnús Már Einarsson
Scholes: Mourinho reynir að spila skemmtilegan fótbolta
Mourinho er að taka við Man Utd.
Mourinho er að taka við Man Utd.
Mynd: Getty Images
Paul Scholes, fyrrum miðjumaður Manchester United, segir að Jose Mourinho muni láta liðið spila skemmtilegan fótbolta.

Mourinho er að taka við Manchester United af Louis van Gaal sem var rekinn í fyrrakvöld.

„Stuðningsmenn Man United vilja sjá skemmtilegan fótbolta og ég er viss um að Mourinho mun reyna að ná því fram," sagði Scholes.

Manchester United skoraði einungis 49 mörk í ensku úrvalsdeildinni á nýliðnu tímabili og leikstíll Van Gaal vakti ekki mikla lukku hjá stuðningsmönnunum.

„Náði Van Gaal gildum félagsins undanfarin tvö ár? Ég held að Mourinho hafi fylgst vel með og sé hvað gerðist. Hann er topp stjóri, hann hefur sýnt það áður og mun vonandi gera það aftur."
Athugasemdir
banner
banner
banner