U17 ára landslið karla æfði með A-landsliði karla á Laugardalsvelli í dag.
Íslenska A-landsliðið hóf á mánudag undirbúning fyrir EM í Frakklandi.
Einungis átta leikmenn eru þó mættir til æfinga þar sem leikmenn sem spila á Norðurlöndunum eiga leiki um helgina.
Íslenska A-landsliðið hóf á mánudag undirbúning fyrir EM í Frakklandi.
Einungis átta leikmenn eru þó mættir til æfinga þar sem leikmenn sem spila á Norðurlöndunum eiga leiki um helgina.
Leikmenn U17 ára landsliðsins bættust í hópinn í dag til að hafa fjölmennari æfingu.
Skemmtileg reynsla fyrir U17 ára leikmennina en þeir voru sáttir eftir æfinguna eins og sjá má á myndinni hér til hliðar.
U17 ára landslið karla æfði í dag með A-landsliðinu. Strákarnir stóðu sig vel og voru vel sáttir með æfinguna! pic.twitter.com/lgUzQzRIQR
— Knattspyrnusambandið (@footballiceland) May 25, 2016
Athugasemdir