Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 25. maí 2016 10:30
Magnús Már Einarsson
Vardy giftir sig í dag - Stutt stopp hjá Drinkwater
Gifting framundan.
Gifting framundan.
Mynd: Getty Images
Jamie Vardy, framherji Leicester og enska landsliðsins, og unnusta hans Rebekah Nicholson munu gifta sig klukkan 13:00 í dag.

Vardy fékk frí frá undirbúningi enska landsliðsins fyrir EM til að gifta sig en hann verður ekki með í leiknum gegn Ástralíu á föstudag.

Vardy fær síðan frí frá landsliðinu á morgun og á föstudag áður en hann kemur aftur til móts við hópinn á laugardag.

Margir liðsfélagar Vardy hjá Leicester ætla að mæta í giftinguna í dag og þar á meðal er Danny Drinkwater.

Drinkwater nær þó að stoppa stutt við í athöfninni því hann á að vera mættur á æfingu hjá enska landsliðinu klukkan 15:00.

Enskir fjölmiðlar telja að David Nugent, fyrrum framherji Leicester og núverandi leikmaður Middlesbrough, verði svaramaður Vardy í athöfninni í dag.
Athugasemdir
banner
banner
banner