Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
   fim 25. maí 2017 22:47
Lárus Ingi Magnússon
Bói: Jeppe er stórhættulegur
Hólmar Örn Rúnarsson.
Hólmar Örn Rúnarsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Þetta eru vonbrigði,við viljum fá þrjú stig á heimavelli. En þetta var hörkuleikur, Selfoss er með mjög gott lið," sagði Hólmar Örn Rúnarsson miðjumaður Keflavíkur eftir 2-2 jafntefli við Selfoss í kvöld.

Lestu um leikinn: Keflavík 2 -  2 Selfoss

Keflavík var lengst af að leita mikið að Jeppe Hansen á vellinum, þar til þeir lentu undir þá fóru þeir að sækja á annan hátt.

„Já það getur vel verið. Ég sá það ekki alveg þannig en við leitum mikið að Jeppe því hann er stórhættulegur. Hann var alltaf við það að detta í gegn en það datt ekki alveg hjá honum núna. Það kom smá kraftur í okkur eftir bæði mörkin sem við skoruðum og mér fannst við líklegir en við náðum ekki alveg að fylgja því eftir."

Hólmar skoraði sjálfur í leiknum en hvað er langt síðan hann skoraði síðast deildarmark í Keflavík?

„Í Keflavík... ég held að það hafi verið 2015 á móti Val þegar við skítféllum úr Pepsi-deildinni," sagði Hólmar sem er að koma inn í liðið aftur eftir meiðsli. Hvernig er staðan á skrokknum?

„Staðan er ágæt. Þetta er alltaf að verða betra og betra. Ég er ekki orðinn 90 mínútna maður og hvað þá 70 mínútna eins og í dag, en með smá klókindum næ ég að spila 70. Þetta mjakast áfram."
Athugasemdir
banner
banner