Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
Finnst línan vera óskýr - „Þeir máttu það í dag“
Alltaf skemmtilegustu leikirnir - „Ég er með eitraða hægri löpp"
Hinrik Harðar: Mikil ábyrgð að vera kominn í ÍA
Rúnar Páll: Það er það sem Fylkir gengur út á
Jón Þór: Vil byrja mótið 1. mars
Amanda: Markmiðið er að fara aftur út en fókusinn er á Val
Jóhann Kristinn: Mér fannst við ekki komast yfir spennuna
Haddi: Meira svekktur með frammistöðuna en að hafa fengið á okkur mark
banner
   fim 25. maí 2017 22:34
Lárus Ingi Magnússon
Jóhann Bjarnason: Gunni er veikur heima
Jóhann Bjarnason aðstoðarþjálfari Selfoss.
Jóhann Bjarnason aðstoðarþjálfari Selfoss.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
„Gunni er veikur heima, hann gat ekki komið með okkur í dag en verður vonandi frískur í næsta leik," sagði Jóhann Bjarnason aðstoðarþjálfari Selfoss eftir 2-2 jafntefli við liðsins við Keflavík í Inkasso deildinni í kvöld en athygli vakti að Gunnar Borgþórsson þjálfari liðsins var hvergi sjáanlegur á svæðinu.

Lestu um leikinn: Keflavík 2 -  2 Selfoss

Selfoss komst tvisvar yfir í leiknum en fékk í bæði skiptin mark í bakið. Var þetta værukærð?

„Nei, alls ekki. Það er einhvern veginn alltaf svona. Þegar maður er nýbúinn að skora missa menn fókus og það var það sem gerðist í dag fannst mér. Mér fannst reyndar brotið á Steina í fyrra markinu en það telur ekkert. Það var frábær seinni hálfleikur og virkilega gaman á vellinum, eins og þetta á að vera."

Guðjón Orri Sigurjónsson markvörður meiddist snemma leiks og haltraði auk þess sem hann gat ekki tekið spyrnur. Var hann ekki hræddur við að halda honum inni?

„Jú við ræddum það í fyrri hálfleiknum og í hálfleik hvað við ættum að gera við hann, en Gaui er sannur eyjamaður og tók það ekki í mál að fara útaf. Þetta er aðeins framan á lærinu á honum, hann verður klár næst."

Nánar er rætt við hann í sjónvarpinu að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner