Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 25. maí 2017 10:30
Stefnir Stefánsson
Levy: Pochettino verður áfram hjá Tottenham
Mynd: Getty Images
Daniel Levy, stjórnarformaður Tottenham, segir að Pochettino sé ekki að fara fet, en hann hefur verið orðaður við stjórastöðuna hjá Barcelona upp á síðkastið.

Þá var Pochettino einnig orðaður við Inter Milan nú á dögunum en Daniel Levy, hefur fullvissað stuðningsmenn félagsins um að ekkert þurfi að óttast.

Tottenham eru nú í æfingaferð í Hong-Kong þar sem að liðið spilar leik við Kitchee SC á föstudaginn næstkomandi. Á blaðamannafundi var Levy spurður að því hvort að Pochettino væri á förum frá félaginu.

„Sjáðu, hann er hér. Hann situr hér með okkur núna. Ég stórefa það að hann sé á förum eitthvert. Hann elskar okkur." sagði Levy á léttu nótunum.

Fyrr í mánuðnum voru einhverjir miðlar sem greindu frá því að Pochettino væri með 5 milljón punda klásúlu í samningi sínum við félagið. En hann var fljótur að þvertaka fyrir það og sagði það eintóman þvætting.
Athugasemdir
banner
banner
banner