Marco Silva er hættur sem stjóri Hull en félagið staðfesti það í dag.
Silva ásamt Joao Pedro Sousa, aðstoðarþjálfari og Hugo Oliveira markmannsþjálfari var öllum boðið að vera áfram hjá félaginu en neituðu allir.
Silva var búinn að vera hjá félaginu í fjóra og hálfa mánuði en hann tók við af Mike Phelan.
Þá var Hull í vondri stöðu í deildinni og var markmið Silva að bjarga liðinu. Það tókst ekki, þótt svo hlutirnir urðu bjartari eftir að Silva tók við. Hull endaði í 18. sæti deildarinnar og féll í næst síðustu umferðinni eftir harða baráttu við Swansea.
„Þrátt fyrir vonbrigði með brotthvarf Silva, þá viljum við enn og aftur þakka honum fyrir tíma sinn hjá félaginu," segir í yfirlýsingur frá Hull.
Vara-stjórnarformaður félagsins Ehab Allam sagði við Sky Sports að hann skildi það að Silva ætti ekki heima í Championship deildinni og að hann vilji þjálfa í ensku úrvalsdeildinni eða hjá góðu evrópsku félagi.

Athugasemdir