Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 25. maí 2017 08:00
Brynjar Ingi Erluson
Smalling um Mourinho: Hann var í skýjunum
Chris Smalling fagnaði vel og innilega í gær
Chris Smalling fagnaði vel og innilega í gær
Mynd: Getty Images
Chris Smalling, leikmaður Manchester United á Englandi, var hæstánægður með Evrópudeildarsigurinn í gær í Stokkhólmi.

Tímabilið hjá United hefur verið undarlegt. Liðið hefur fengið mikla gagnrýni fyrir að spila undir getu en liðið vann þó þriðja titil sinn á tímabilinu í gær.

United vann deildabikarinn og Samfélagsskjöldinn á tímabilinu og eftir 2-0 sigurinn á Ajax í gær þá bættist við Evrópudeildarbikarinn í safnið.

Smalling var spurður út í fagnaðarlæti Mourinho en portúgalski stjórinn virtist yfir sig ánægður með afrekið.

„Hann var alveg í skýjunum. Í öllum ræðunum þá kom aldrei neitt annað til greina en að ná í sigur. Þarna kom stóri sigurinn," sagði Smalling.

„Hann ræddi ekki um hinn möguleikann og það var heldur ekkert í boði hjá okkur," sagði hann í lokin.
Athugasemdir
banner
banner
banner