Gareth Southgate, landsliðsþjálfari Englands tilkynnti landsliðshóp sinn í dag og þar var enginn Wayne Rooney.
„Við höfum marga leikmenn í svipaðri stöðu og Wayne Rooney sem hafa verið að spila virkilega vel," sagði Southgate.
Rooney var ekki heldur valinn í síðasta landsliðshóp Southgate en þá var hann meiddur. Rooney hefur hins vegar ekki spilað mikið á þessu tímabili og aðeins byrjað 15 leiki fyrir Manchester United á tímabilinu.
„Ég sagði í mars að hann þyrfti að spila fleiri leiki. Hann hefur spilað aðeins núna en við höfum leikmenn sem hafa verið að spila virkilega vel í Adam Lallana og Dele Alli. Við höfum einnig Marcus Rashford, Harry Kane er að koma til baka og Jermain Defoe gerði virkilega vel síðast. Þá hefur Jamie Vardy verið í frábæru formi á seinni hluta tímabilsins."
Rooney er markahæsti leikmaður í sögu Manchester United og enska landsliðsins. Þá er hann einnig leikjahæsti útileikmaður í sögu enska landsliðsins.
„Ég get ekki sagt þetta öðruvísi. Aðrir leikmenn eru í mjög góðu formi og eiga skilið að vera í hópnum," sagði Southgate.

Athugasemdir