Heimild: Vísir
Sindri Snær Jensson mun verja mark KR næsta mánuðinn að minnsta kosti en þetta kemur fram á Vísi.
Stefán Logi Magnússon markvörður KR er meiddur á hné og fór í bráðaaðgerð.
Stefán Logi Magnússon markvörður KR er meiddur á hné og fór í bráðaaðgerð.
Stefán Logi verður frá í að minnsta kosti mánuð og því mun varamarkvörður KR, Sindri Snær, spila leikinn gegn FH á sunnudagskvöld og næstu leiki
„Við búum mjög vel að hafa Sindra til taks og því gátum við hugað að heilsu Stefáns. Sindri er öflugur og við eigum unga stráka sem koma inn á æfingar og á bekkinn hjá okkur,“ segir Willum Þór Þórsson, þjálfari KR.
Sindri er fyrrum markvörður Vals og Þróttar en hann lék fjóra leiki í marki KR í Pepsi-deildinni 2015.
KR-ingar eru í sjöunda sæti Pepsi-deildarinnar, hafa sex stig að loknum fjórum umferðum.
Athugasemdir