Skallagrímur og GG frá Grindavík unnu leiki sína í 4. deild karla í gærkvöldi.
Skallagrímur lagði Elliða að velli eftir markalausan fyrri hálfleik. Borgnesingar léku allan síðari hálfleikinn manni færri en létu það ekki á sig fá og unnu með marki frá Guillermo Gonzalez Lamarca.
Skallagrímur lagði Elliða að velli eftir markalausan fyrri hálfleik. Borgnesingar léku allan síðari hálfleikinn manni færri en létu það ekki á sig fá og unnu með marki frá Guillermo Gonzalez Lamarca.
Jón Unnar Viktorsson og Símon Logi Thasaphong gerðu þá mörk GG í 2-1 sigri gegn Álafossi. Aron Ingi Kevinsson gerði eina mark heimamanna undir lokin, en þetta var fyrsti leikur þeirra á tímabilinu. GG er með sex stig eftir tvo leiki.
Minnugir lesendur gætu munað eftir Aroni Kevinssyni sem fór til Malasíu fyrir fjórum árum og æfði með El-Hadji Diouf hjá Sabah FA.
B-riðill:
Skallagrímur 1 - 0 Elliði
1-0 Guillermo Gonzalez Lamarca ('49)
Rautt spjald: Birgir Þór Sverrisson, Skallagrímur ('40)
C-riðill:
Álafoss 1 - 2 GG
0-1 Jón Unnar Viktorsson ('33)
0-2 Símon Logi Thasaphong ('72)
1-2 Aron Ingi Kevinsson ('83)
Markaskorarar af urslit.net
Athugasemdir