Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 25. maí 2018 08:22
Magnús Már Einarsson
BBC: Man Utd á eftir Alderweireld og Fred
Toby Alderweireld.
Toby Alderweireld.
Mynd: Getty Images
Manchester United hefur spurst fyrir um varnarmanninn Toby Alderweireld hjá Tottenham og miðjumanninn Fred hjá Shakhtar Donetsk. BBC segir frá þessu í dag.

Talið er að leikmennirnir kosti Manchester United samtals 100 milljónir punda.

United vill ganga frá kaupunum á Fred áður en hann fer á HM með brasiliska landsliðinu.

Tottenham er til í að selja Alderweireld þar sem hann er með klásúlu um að mega fara á 25 milljónir punda eftir ár.

Matteo Darmian, Daley Blind og Luke Shaw gætu hins vegar allir verið á förum frá United. Juventus vill fá Darmian í sínar raðir.
Athugasemdir
banner
banner
banner