Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 25. maí 2018 20:00
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Brighton leggur fram tilboð í Liam Moore
Liam Moore er leikmaður Reading.
Liam Moore er leikmaður Reading.
Mynd: Getty Images
Brighton er byrjað að styrkja sig fyrir næsta tímabil í ensku úrvalsdeildinni en fyrr í dag staðfestu þeir kaup sín á Florin Andone framherja Deportivo La Coruna.

Sky Sports greindi frá því í kvöld að Brighton sé búið að leggja fram tilboð í varnarmann Reading.

Liam Moore er varnarmaðurinn sem um ræðir en hann er 25 ára gamall Englendingur sem hefur leikið með Reading frá árinu 2016.

Brighton hélt sæti sínu í ensku úrvalsdeildinni nokkuð örugglega en þeir komust upp í ensku úrvalsdeildina síðasta vor.


Athugasemdir
banner
banner
banner