Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 25. maí 2018 18:30
Magnús Már Einarsson
Florin Andone til Brighton (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Brighton & Hove Albion hefur keypt framherjann Florin Andone frá Deportivo La Coruna á Spáni.

Andone hefur skrifað undir fimm ára samning en kaupverðið hefur ekki veirð gefið upp.

Andone er rúmenskur landsliðsmaður en hann hefur skorað 18 mörk í 69 leikjum með Deportivo.

Brighton hélt sæti sínu á fyrsta tímabili í ensku úrvalsdeildinni en á dögunum samdi við félagið við Leon Balogun varnarmann Mainz.
Athugasemdir
banner
banner
banner