Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 25. maí 2018 20:30
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Inkasso: Ingibergur Kort hetja Víkings gegn Haukum
Ingibergur Kort Sigurðsson skoraði sigurmarkið.
Ingibergur Kort Sigurðsson skoraði sigurmarkið.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Haukar 0-1 Víkingur Ó.
0-1 Ingibergur Kort Sigurðsson ('76)

Fyrri leik dagsins í Inkasso deildinni er nú ný lokið þar sem Haukar og Víkingur Ólafsvík mættust á Ásvöllum í Hafnarfirði.

Fyrri hálfleikurinn einkenndist af mikilli baráttu þar sem Víkingur var líklegri aðilinn til að skora en hvorugu liðinu tókst þó að koma boltanum í netið.

Í síðari hálfleik kom fyrsta og eina mark leiksins en það skoraði Ingibergur Kort leikmaður Víkings á 76. mínútu, niðurstaðan á Ásvöllum var því sú að gestirnir frá Ólafsvík tóku stigin þrjú.

Víkingur Ólafsvík var fyrir leikinn í 4. sæti og þar verða þeir áfram en nú með 7 stig, Haukar eru nú þremur stigum á eftir Víkingi en liðin voru jöfn að stigum fyrir leikinn í dag.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner