Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 25. maí 2018 19:00
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Launakröfur Martin Skrtel of háar fyrir Rangers
Gerrard og Skrtel léku saman hjá Liverpool.
Gerrard og Skrtel léku saman hjá Liverpool.
Mynd: Getty Images
Steven Gerrard tók við Rangers í Skotlandi á dögunum en eftir það var hans fyrrum liðsfélagi í Liverpool, Martin Skrtel orðaður við félagið.

Umboðsmaður Skrtel segir hins vegar að of háar launkröfur Slóvakans komi í veg fyrir að hann fari til Skotlands en Skrtel leikur í dag fyrir Fenerbahce í Tyrklandi.

„Martin (Skrtel) myndi hafa mjög gaman af því að spila undir stjórn Steven Gerrard en þegar kemur að félagaskiptum þá þurfa margir hlutir að smella og því miður er það ómögulegt að láta þetta ganga upp,“ sagði umboðsmaður Skrtel.

„Þegar það munar ekki mjög miklu þá er hægt að leysa úr því en í þessu máli þá eru launakröfur leikmanns í Tyrklandi fjórum til fimm sinnum hærri en Rangers getur boðið og það er einfaldlega of mikill munur.“
Athugasemdir
banner
banner