Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   fös 25. maí 2018 14:32
Magnús Már Einarsson
Liverpool reynir að hjálpa stuðningsmönnum eftir að flugi var aflýst
Mynd: Getty Images
Um það bil 1000 stuðningsmenn Liverpool fengu slæmar fréttir í gær þegar flugi þeirra frá Englandi til Kiev var aflýst fyrir úrslitaleik Meistaradeildarinnar á morgun.

Liverpool vinnur nú að því að hjálpa stuðningsmönnunum að ná leiknum á morgun.

„Ég veit að félagið er að reyna allt sem það getur til að finna lausn á þessu," sagði Jurgen Klopp stjóri Liverpool á fréttamannafundi nú rétt í þessu.

„Ég veit að það er ekki mikill tími til stefnu en við reynum að ná öllum til Kiev."

Leikurinn í Kiev annað kvöld hefst klukkan 18:45 að íslenskum tíma.
Athugasemdir
banner
banner