Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   fös 25. maí 2018 11:00
Magnús Már Einarsson
Ronaldo: Ég er allt öðruvísi en Salah
Ronaldo er klár í leikinn annað kvöld.
Ronaldo er klár í leikinn annað kvöld.
Mynd: Getty Images
Cristiano Ronaldo og Mohamed Salah eru líklegastir til að vera á skotskónum í úrslitaleik Meistaradeildarinnar annað kvöld ef horft er á tímabilið hjá Real Madrid og Liverpool.

Ronaldo hefur skorað 43 mörk í öllum keppnum en Salah er kominn með 44 mörk.

„Fólk vill bera mig saman við aðra leikmenn. Ég er öðruvísi en allir aðrir og Salah er öðruvisi en allir aðrir. Við erum öðruvísi," sagði Ronaldo.

„Hann spilar með vinstri og ég spila með hægri. Ég er hávaxinn en hann er aðeins lágvaxnari," sagði Ronaldo sem er 12 cm hávaxnari en Salah.

„Ég spila með höfðinu og við erum allt öðruvísi. Hann hefur átt stórkostlegt tímabil en við sjáum hvað gerist á laugardaginn."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner