Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 25. maí 2018 22:30
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Van Dijk: Ég elska að spila fyrir þetta félag
Mynd: Getty Images
Virgil van Dijk og félagar hans í Liverpool eiga stórt verkefni fyrir höndum á morgun en þeir mæta þá Real Madrid í úrslitaleik Meistaradeildarinnar.

Van Dijk sem kom til Liverpool í janúar virðist mjög ánægður með lífið hjá félaginu. Hann var spurður út í hvernig honum hefur gengið að aðlagast hjá Liverpool.

„Frá fyrsta degi hafa leikmenn, stjórinn og aðrir starfsmenn félagsins komið fram við mig af mikilli virðingu og það hjálpar auðvitað til við að aðlagast. Úrslitin sem við höfum náð í hafa einnig hjálpað, en Liverpool er liðið mitt og Anfield er heimili mitt," sagði Van Dijk.

„Ég elska að spila fyrir þetta félag, en nú erum við komnir í úrslitaleik Meistaradeilarinnar þar sem við ætlum okkur alla leið."




Athugasemdir
banner
banner
banner