Fotbolti.net
25.06.13 - 13:20
Magnús Már Einarsson

Guðjón Árni í hvíld: Betra að geta hreyft sig í framtíðinni

Guðjón Árni Antoníusson.

Guðjón Árni Antoníusson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Guðjón Árni Antoníusson, fyrirliði FH, verður ekki með liðinu gegn Val í Pepsi-deildinni næstkomandi sunnudagskvöld og ólíklegt er að hann verði með gegn Fram annan miðvikudag.

Guðjón Árni hefur fengið tvö höfuðhögg á tímabilinu og hann þarf að taka sér tveggja vikna frí frá keppni og æfingum að læknisráði. Guðjón fékk síðara höfuðhöggið gegn Stjörnunni á fimmtudag og hann var uppi í stúku í leiknum gegn Fylki í gærkvöldi.
,,Ég fékk heilahristing gegn ÍBV um daginn og var búinn að jafna mig á því. Ég var 10 daga í algjörri hvíld eftir það,\" sagði Guðjón Árni við Fótbolta.net í dag.

,,Ég fékk síðan aftur högg á höfuðið gegn Stjörnunni og þá eru vinnureglur hjá læknunum að taka tveggja vikna pásu þar sem púlsinn má ekki fara upp.\"

,,Þetta er hundleiðinlegt en ef maður horfir á þetta stærra samhengi þá er betra að geta hreyft sig í framtíðinni. Maður hefur heyrt af Guðrúnu Sóleyju landsliðskonu og fleirum sem eru ennþá með höfuðverki. Maður vill ekki lenda í því.\"

Jón Ragnar Jónsson hefur leyst Guðjón Árna af í stöðu hægri bakvarðar hingað til í sumar og hann byrjaði gegn Fylki í gær.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.