Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 25. júní 2016 20:13
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
1. deild kvenna: Keflavík og Grindavík með sigra
Keflavík vann risasigur
Keflavík vann risasigur
Mynd: Facebook
Tveir leikir fóru fram í B-riðli 1. deildar kvenna í dag, en það voru Suðurnesjarliðin Keflavík og Grindavík sem voru hlutskörpust í þessum leikjum.

Grindavík fékk Fjölniskonur í heimsókn. Ekkert mark var skorað í fyrri hálfleik, en í seinni hálfleiknum reyndist Grindavík sterkara liðið.

Linda Eshun skoraði fyrst og Laura Brennan bætti svo við marki tíu mínútum eftir fyrra markið.

2-0 sigur Grindavík staðreynd, en í hinum leiknum vann Keflavík svo risasigur á slöku liði Gróttu.

Grótta er búið að tapa öllum sínum leikjum hingað til og engin breyting var á því í dag. Keflavík skoraði 11 mörk á móti einu frá Gróttu og gríðarlegur munur á liðunum.

B riðill
Grindavík 2 - 0 Fjölnir

1-0 Linda Eshun (´50 )
2-0 Laura Brennan (´60 )

Grótta 1 - 11 Keflavík
1 - 0 Sveindís Jane Jónsdóttir
1 - 1 ??
2 - 1 Anita Lind Daníelsdóttir
3 - 1 Amber Pennybaker
4 - 1 Una Margrét Einarsdóttir
5 - 1 Sveindís Jane Jónsdóttir
6 - 1 Sveindís Jane Jónsdóttir
7 - 1 Anita Lind Daníelsdóttir
8 - 1 Birgitta Hallgrímsdóttir (víti)
9 - 1 Sveindís Jane Jónsdóttir
10 - 1 Sveindís Jane Jónsdóttir
11 - 1 Sveindís Jane Jónsdóttir
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner