Það styttist í lokaleik dagsins á EM í Frakklandi. Króatía og Portúgal mætast þá í 16-liða úrslitunum.
Byrjunarliðin fyrir leikinn eru klár og má sjá þau hér að neðan.
Króatía vann sinn riðil sem innihélt meðal annars Evrópumeistara Spánverja á meðan Portúgalar lentu í 3. sæti í riðli með okkur Íslendingum.
Króatía byrjar með sama lið í dag og þeir byrjuðu með í fyrstu tveimur leikjunum og koma Luka Modric og Mario Mandzukic aftur inn í liðið.
Hjá Portúgal eru þrír leikmenn að byrja sinn fyrsta leik á mótinu. Þeir Cedric og Jose Fonte koma inn í vörnina og Adrien Silva kemur á miðjuna. Joao Moutinho er óvænt settur á bekkinn í dag.

Króatía: Subasic, Srna, Corluka, Vida, Strinic, Modric, Badelj, Brozovic, Rakitic, Perisic, Mandzukic.
Portúgal: Rui Patricio, Cedric, Pepe, Fonte, Guerreiro, Joao Mario, Adrien Silva, William Carvalho, Andre Gomes, Nani, Ronaldo.
Athugasemdir