Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 25. júní 2016 15:19
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Byrjunarlið Wales og N-Írlands: McNair settur á bekkinn
McNair byrjar ekki í dag
McNair byrjar ekki í dag
Mynd: Getty Images
Það verður Bretlandseyjaslagur nú á eftir þegar Wales og Norður-Írland mætast í 16-liða úrslitunum á EM í Frakklandi.

Byrjunarliðin eru klár og það er ekki sérlega mikið sem kemur á óvart í þeim efnum.

Wales vann Rússland 3-0 í síðasta leik og heldur algjörlega óbreyttu liði frá þeim leik. Ramsey, Allen og Bale eru allir á sínum stað.

Norður-Írar gera hins vegar tvær breytingar á sínu liði frá 1-0 tapinu gegn Þjóðverjum í síðasta leik. Oliver Norwood og Kyle Lafferty koma inn í liðið á kostnað Paddy McNair og Conor Washington.

Wales: Hennessey, Gunter, Chester, Williams, Taylor, Davies, Ledley, Ramsey, Allen, Vokes, Bale.

Norður-Írland: McGovern, Hughes, McAuley, Cathcart, J Evans, C Evans, Norwood, Davis, Dallas, Ward, Lafferty.
Athugasemdir
banner
banner
banner