Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   lau 25. júní 2016 17:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Cantona fer á kostum: Will Grigg's on fire!
Cantona er einn sá allra skemmtilegsti
Cantona er einn sá allra skemmtilegsti
Mynd: Getty Images
Eric Cantona, fyrrum leikmaður Manchester United, er með EM dagbók á vegum Eurosport.

Þar fer hann algjörlega á kostum, en í dag talaði hann meðal annars um Ísland og sóknarmanninn Will Grigg.

Frægðarsól Grigg hefur heldur betur risið hratt og er hann orðinn gríðarlega þekktur þrátt fyrir að leika aðeins með Wigan.

Ástæðan því er stuðningsmannalagið „Your defence is terrified, Will Grigg's on fire", en það hefur slegið í gegn.

Svo mikið að Cantona ákvað sjálfur að taka lagið í myndbandinu hér að neðan.

Hann byrjar að syngja lagið fræga eftir um mínútu í myndbandinu.


Athugasemdir
banner
banner