Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 25. júní 2016 11:37
Magnús Már Einarsson
Cantona: Vona að Gummi Ben hafi ekki vakið eldfjöllin
Icelandair
Mynd: Getty Images
Eric Cantona, fyrrum leikmaður Manchester United, er með EM dagbók á vegum Eurosport.

Þar ræðir hann ýmislegt í kringum Evrópumótið og Ísland ber á góma hjá honum í dag.

„Ég sagði að Ísland ætti möguleika á að vinna EM. Þeir hafa ekki unnið ennþá en þeir eru komnir í 16-liða úrslit," sagði Cantona.

„Þegar þeir skoruðu sigurmarkið fékk lýsandinn alvarlega fótbolta fullnægingu."

„Ég vona bara að öskrin hans hafi ekki vakið eldfjöllin."


Hér að neðan má sjá innslag Cantona. Hann talar um Ísland eftir rúmar tvær mínútur.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner