Ítalska stórliðið AC Milan hefur tilkynnt það að sóknarmaðurinn Gianluca Lapadula muni gangast undir læknisskoðun hjá félaginu.
Lapadula, sem er samningsbundinn Pescara, var markahæstur í Seríu B á síðasta tímabili.
Hann hafði verið orðaður við ýmis félög og hvað helst þá við ensku meistararanna í Leicester.
„Þetta voru mjög snögg skipti, en báðir aðilar vildu þetta. Ég er mjög ánægður og þakklátur Adriano Galliani og Silvio Berlusconi," sagði Lapadula.
„Ég verð að þakka Pescara fyrir hlýju orðin og fyrir traustið sem þeir hafa sýnt mér síðustu ár."
Talið er að Lapadula muni kosta Milan um 9 milljónir evra.
Athugasemdir