Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 25. júní 2016 19:08
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Hannes í liði riðlakeppninnar hjá Eurosport
Icelandair
Hannes Þór hefur vakið mikla athygli
Hannes Þór hefur vakið mikla athygli
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Markvörðurinn Hannes Þór Halldórsson hefur verið einn besti leikmaður Íslands á EM í Frakklandi.

Hann hefur varið flest skot á mótinu og vakið mikla athygli í marki Íslands.

Ýmsir fjölmiðlar hafa verið duglegir við það að velja í lið riðlakeppninnar og hafa íslenskir leikmenni verið í ófáum þeirra.

Hannes Þór var meðal annars valinn í liðið hjá Copa 90 og þá valdi einn helsti penni BBC hann í liðið hjá sér.

Eurosport hefur nú valið lið sitt og er Hannes á sínum stað á milli stanganna. Í liðinu auk hans má finna stjörnur eins og Andres Iniesta, Dimitri Payet og Gareth Bale.

Hér að neðan má sjá liðið í heild sinni.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner