Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 25. júní 2016 08:12
Jóhann Ingi Hafþórsson
James Rodriguez gæti farið til Manchester United
Powerade
James Rodriguez gæti farið til Englands.
James Rodriguez gæti farið til Englands.
Mynd: Getty Images
Óvíst er hvort Lukaku verði áfram hjá Everton.
Óvíst er hvort Lukaku verði áfram hjá Everton.
Mynd: Getty Images
Kæru lesendur, hér er komið að því. Slúður pakki dagsins.

James Rodriguez má yfirgefa Real Madrid ef Manchester United er reiðubúið að borga 50 milljónir punda. (Daily Mirror)

Manchester City eru að undirbúa boð fyrir John Stones, varnarmann Everton. Á sama tíma er Everton búið að setja 75 milljóna punda verðmiða á Romelu Lukaku. (Daily Express)

Lukaku segir sjálfur að umboðsmaður sinn fái að ráða framtíð sinni. (Sky Sports)

West Brom eru í viðræðum við Palermo um kaup á Franco Vazquez, miðjumanni. Hann er metinn á 19 milljónir en er West Brom reiðubúið að kaupa hann á 14. (Calcionews)

Zinedine Zidane hefur sagt að Dimitri Payet geri öll lið í Evrópu betri. (Daily Mirror)

Pep Guardiola hringdi í Raheem Sterling nýlega. Sterling hefur verið gagnrýndur fyrir lélega frammistöðu með Englandi á EM en hann var tekinn úr liðinu fyrir leikinn á móti Slóvakíu. (Guardian)

Antonio Conte, stjóri Chelsea, fær það verkefni að koma Chelsea aftur í efstu fjögur sætin í deildinni en liðið hafnaði í 10. sæti á síðustu leiktíð. (Daily Mirror)

Sunderland, Manchester United, Everton og Southampton eru öll á eftir Ozan Tufan, miðjuanns frá Tyrklandi. Hann spilar með Fenerbache og skoraði í 2-0 sigri liðsins á Tékkum á EM. (Chronicle)

Watford hefur bæst í hóp þeirra liða sem hafa áhuga á að fá Andros Townsend til sín. (Daily Mirror)

Ashley Fletcher, ungur framherji hjá Manchester United, hefur neitað nýju samningstilboði frá liðinu en hann hefur verið orðaður við Leeds. (Yorkshire Evening Post)

Chelsea, Manchester United og Arsenal hafa öll áhuga á að fá Alvaro Morata, leikmanns Real Madrid. (Squawka)

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner