Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 25. júní 2016 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Kranjcar: Barton er vanmetnasti leikmaður í heimi
Kranjcar hefur miklar mætur á Joey Barton
Kranjcar hefur miklar mætur á Joey Barton
Mynd: Getty Images
Niko Kranjcar samdi við Rangers í Skotlandi til tveggja ára á dögunum.

Þar hittir hann fyrrum liðsfélaga sinn Joey Barton, en hann segir Barton einn vanmetnasta leikmann í heimi.

„Það hefur verið svo vel sagt frá því hvað Joey getur. Hann er líklega vanmetnasti leikmaður sem ég hef spilað með vegna þess að eiginleikar hans eru með þeim bestu í heimi," sagði Kranjcar.

„Karakterinn hans, ég held að allir vita að hann muni koma með meira til félagsins, hann mun gefa allt til þess að vinna fótboltaleik og þess vegna held ég að hann muni henta vel fyrir þetta félag."

Rangers endurheimti sæti sitt í skosku úrvalsdeildinni á dögunum eftir að hafa verið dæmt niður í D-deild árið 2012 eftir gjaldþrot og liðið ætlar sér stóra hluti á komandi tímabili.
Athugasemdir
banner
banner
banner