Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
   lau 25. júní 2016 18:16
Arnar Daði Arnarsson
Samsung-vellinum
Óli Guðbjörns: Ljóst hvort liðið var með betri markmann í dag
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ólafur Þór Guðbjörnsson þjálfari Stjörnunnar var ánægður með 3-0 sigur liðsins á Val í toppbaráttu slag í Pepsi-deild kvenna í dag.

Stjarnan komst snemma yfir í leiknum og stuttu seinna juku þær forskotið. Eftir það var aldrei spurning hvert stigin færu.

Lestu um leikinn: Stjarnan 3 -  0 Valur

„Þetta eru tvö hörku lið og jöfn lið. Vorum vorum þéttari og sterkari í dag og vorum komnar í þægilega 2-0 stöðu og þá eru þær að reyna sækja og þá opnaðist fyrir okkur og þannig datt þriðja markið inn."

„Mér fannst við í heildina betra liðið og þetta var sanngjarn sigur. Við vorum þolinmóðar og vörðumst og leyfðum þeim að sprikla aðeins. Síðan hægt og rólega fannst mér við taka leikinn yfir og síðan vorum við að sigla þessum heim í seinni hálfleik og biðum eftir að þær myndu opna sig til baka og það gerðist," sagði Óli.

Sandra Sigurðardóttir markvörður Vals var keypt fyrir tímabilið á tvær milljónir króna frá Stjörnunni. Hún gerði sig seka um mistök í fyrsta marki Stjörnunnar og átti þátt í öðru markinu einnig. Hinum megin stóð hin unga og efnilega Berglind Hrund vaktina vel og var einn besti leikmaður vallarins.

„Í dag var alveg klárt hvort væri betri í þessum leik fannst mér. Berglind stóð sig frábærlega og greip vel inní og var með allt sitt á hreinu. Hitt er þeirra vandamál og ég get ekkert verið að skipta mér að því en í dag var ljóst hver var betri markmaðurinn," sagði Ólafur Guðbjörnsson þjálfari Stjörnunnar að lokum.
Athugasemdir
banner
banner
banner