Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 25. júní 2016 14:01
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Redmond í læknisskoðun hjá Southampton
Redmond er að skipta um lið
Redmond er að skipta um lið
Mynd: Getty Images
Nathan Redmond mun gangast undir læknisskoðun hjá Southampton í dag. Þetta segir í frétt frá Sky

Hinn 22 ára gamli Redmond var einn af ljósu punktunum í liði Norwich sem féll úr ensku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili.

Talið er að Redmond muni kosta Southampton um 11 milljónir punda.

Redmond kom til Norwich árið 2013, en síðan þá hefur hann skorað 13 mörk í 122 leikjum. Hann skoraði sex mörk á síðasta tímabili, en það var ekki nóg til þess að halda Norwich í deildinni.

Hann kemur til með að leysa Sadio Mane af hjá Southampton, en Mane er væntanlega á leið til Liverpool fyrir 30 milljónir punda.

Southampton er í leit að nýjum þjálfara eftir að Ronald Koeman tók við Everton. Sá líklegasti í starfið í augnablikinu er Frakkinn Claude Puel.
Athugasemdir
banner
banner
banner