Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 25. júní 2016 12:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Wilmots sama þó Nainggolan reykir - „Þetta er hans líkami"
Nainggolan tekur hér í spaðann á Zlatan
Nainggolan tekur hér í spaðann á Zlatan
Mynd: Getty Images
Marc Wilmots, þjálfari Belgíu, segist vera sama um það að miðjumaðurinn skuli Radja Nainggolan reykja.

Wilmots telur að Nainggolan sé sá eini í belgíska liðinu sem reykir, en hjá landsliðinu eru gerðar sérstakar ráðstafanir fyrir hann.

„Já, Radja reykir. Þetta er ávani og það er mikið af fólki sem gerir þetta bæði í Frakklandi og á Ítalíu," sagði Wilmots.

„Ég ætla ekki að stoppa hann ef þetta er það sem hann þarf. Ég er teygjanlegur þegar kemur að svona hlutum. Þetta er hans líkami."

„Ég passa alltaf að hann fái herbergi með svölum svo reykskynjarinn fari ekki í gang."

„Ef hann fengi ekki að reykja fimm eða sex sígarettur á dag þá myndi hann rústa herberginu sínu."

Athugasemdir
banner
banner
banner