Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 25. júní 2016 13:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
West Ham hefur enn áhuga á að kaupa Lacazette
Lacazette gæti enn verið á leið í enska boltann
Lacazette gæti enn verið á leið í enska boltann
Mynd: Getty Images
Enska úrvalsdeildarfélagið West Ham hefur enn áhuga á því að kaupa franska sóknarmanninn Alexandre Lacazette frá Lyon.

West Ham lagði fram tilboð upp á 31 milljón punda í síðasta mánuði í Lacazette, en því var hafnað.

Það liggur ljóst fyrir að West Ham er á eftir sóknarmanni í toppklassa. Lacazette er einn þeirra sem West Ham hefur áhuga á, en þeir telja hann ekki virði þeirra 50 milljón evra sem Lyon vill fá fyrir hann.

Lacazette hefur skorað 48 mörk á síðustu tveimur tímabilum í Frakklandi og er eftirsóttur, þá sérstaklega hjá liðum á Englandi.

West Ham er líka sagt hafa áhuga á Michi Batshuayi hjá Marseille og Carlos Bacca hjá AC Milan.
Athugasemdir
banner
banner