Sóknarmaðurinn Mario Balotelli hefur skrifað undir nýjan samning hjá franska félaginu Nice, en þetta var staðfest fyrir stuttu.
Balotelli hefur verið orðaður við Borussia Dortmund og Besiktas, en hann ætlar að halda tryggð við Nice.
Balotelli hefur verið orðaður við Borussia Dortmund og Besiktas, en hann ætlar að halda tryggð við Nice.
Hann gekk í raðir Nice á gluggadeginum síðasta sumar eftir að Liverpool ákvað að leyfa honum að fara frítt.
Þegar hann gekk í raðir Nice fékk hann aðeins eins árs samning, en nú hefur félagið ákveðið að verðlauna hann.
Hann átti flott fyrsta tímabil með Nice og hjálpaði liðinu að enda í þriðja sæti frönsku úrvalsdeildarinnar. Balotelli spilaði 28 leiki fyrir félagið og skoraði í þeim 17 mörk.
🚨 OFFICIAL: @ogcnice_eng are delighted to confirm that Mario #Balotelli has signed a new contract with the club pic.twitter.com/DsHMGkugpw
— OGC Nice 🇬🇧🇺🇸 (@ogcnice_eng) June 25, 2017
Athugasemdir