Emre Can er tæpur fyrir leik Þýskalands í Álfukeppninni í dag eftir að hafa orðið fyrir hnjaski á æfingu.
Hinn 23 ára gamli Can hefur verið að spila vel á mótinu.
Þjóðverjar vona að Can geti spilað gegn Kamerún í dag, en heimsmeistararnir þurfa að fá stig úr leiknum til að komast áfram.
Hinn 23 ára gamli Can hefur verið að spila vel á mótinu.
Þjóðverjar vona að Can geti spilað gegn Kamerún í dag, en heimsmeistararnir þurfa að fá stig úr leiknum til að komast áfram.
„Emre Can datt á æfingu, hann festi takkana í grasinu," sagði Joachim Löw, landsliðsþjálfari Þýskalands.
„Þetta lítur ekki út fyrir að vera neitt stórt, en við munum sjá hvernig hann bregst við."
Leikur Þýskalands og Kamerún hefst 15:00 og er í beinni á RÚV.
Staðan í B-riðlinum:
1. Síle - 4 stig, 2+
2. Þýskaland - 4 stig, 1+
3. Ástralía - 1 stig, 1-
4. Kamerún - 1 stig, 2-
Athugasemdir