Victor Wanyama er vinsæll fótboltamaður í Afríku. Nú hefur gata verið nefnd í höfuðið á honum í Dar es Salaam í Tansaníu.
Hinn 25 ára gamli Wanyama mætti á fótboltamót í Ubungo, sem er í Dar es Salaam í Tansaníu. Þar voru mikil hátíðarhöld haldin honum til heiðurs og það var mikið stuð.
Hinn 25 ára gamli Wanyama mætti á fótboltamót í Ubungo, sem er í Dar es Salaam í Tansaníu. Þar voru mikil hátíðarhöld haldin honum til heiðurs og það var mikið stuð.
Wanyama hefur verið í fríi í Tansaníu upp á síðkastið, en hann er mjög vinsæll í landinu.
Hann er það vinsæll að það var gata nefnd í höfuðið á honum. Wanyama, sem kemur frá Kenía, greindi frá því sjálfur á Instagram.
„Ég vil þakka borgarstjóranum og öllum íbúum Ubungo fyrir að taka svona vel á móti mér og fyrir að nefna götu í höfuðið á mér. Ég lofa að koma aftur, takk fyrir gestrisnina sem þið hafið sýnt mér. Takk fyrir Tansanía," skrifaði Wanyama á Instagram.
Myndina má sjá hér að neðan.
Athugasemdir