sun 25. júní 2017 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Inter ætlar að lána Gabigol
Hefur ekki riðið feitum hesti hjá Inter.
Hefur ekki riðið feitum hesti hjá Inter.
Mynd: Getty Images
Ítalska félagið Inter hefur ákveðið að lána Brasilíumanninn Gabriel Barbosa, Gabigol, frá félaginu fyrir næsta tímabil.

Fyrsta tímabil Gabigol á Ítalíu var erfitt fyrir hann.

Hann er núna á förum á láni, en mörg lið hafa áhuga á honum, þar á meðal eru lið á Englandi og á Spáni.

„Inter vill senda hann út á láni og það eru nokkur lið sem hafa áhuga, bæði á Spáni og á Englandi," sagði umboðsmaður leikmannsins, Wagner Ribeiro, við dagblaðið Record.

Gabigol var keyptur til Inter síðasta sumar, en að segja að hann hafi ekki heillað er vægt til orða tekið. Hann byrjaði ekki einn leik í Seríu A og tókst aðeins að skora eitt mark í þeim leikjum sem hann spilaði.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner