Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
banner
   sun 25. júní 2017 22:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Vidal: Sjáum til hvort Sanchez komi til Bayern
Verða þeir liðsfélagar hjá Bayern?
Verða þeir liðsfélagar hjá Bayern?
Mynd: Getty Images
Arturo Vidal, miðjumaður Bayern München, er gríðarlega hrifinn af Alexis Sanchez og hrósar honum gífurlega í viðtali við Bild.

Vidal, sem spilar með Sanchez hjá landsliði Síle, sagði í viðtalinu við Bild að Sanchez myndi klárlega styrkja Bayern ef hann tekur ákvörðun um að færa sig um set á næstunni.

Samningur Sanchez hjá Arsenal rennur út næsta sumar, en hann hefur verið sterklega orðaður við þýsku meistaranna.

„Við munum sjá til Alexis sé á leiðinni," sagði Vidal. „Ég veit það ekki ennþá, ég þekki hann mjög vel. Hann er stórkostlegur leikmaður og hann myndi klárlega styrkja liðið."

Vidal segir að Bayern sé besta lið í heimi.

„Við erum nú þegar með marga toppleikmenn. Við erum besta lið í heimi," sagði Vidal enn fremur.
Athugasemdir
banner
banner