Aron Einar Gunnarsson segist vera klár í slaginn fyrir leikinn gegn Króatíu annað kvöld. Hann var spurður að því á fréttamannafundi á Rostov leikvangnum í dag hvernig endurheimtin hefur gengið síðustu daga.
„Mér líður mjög vel. Þetta hefur verið harka og sérstaklega í leikjunum," sagði landsliðsfyrirliðinn sem er að stíga upp úr meiðslum og hefur því verið í kapphlaupi við tímann fyrir hvern leik til að vera hvað best undirbúinn þegar flautað er til leiks.

„Mér fannst sérstaklega í dag var ákveðin keyrsla á æfingunni og menn voru vel gíraðir í þetta og það voru smá átök á æfingunni. Mér finnst það yfirleitt virka vel fyrir leiki. Við erum með bakið upp við vegginn núna og við verðum að gera okkar," sagði Aron Einar og bætti við.
„Það lítur þannig út að menn séu fókuseraðir í verkefnið á morgun."
Athugasemdir