Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 25. júní 2018 07:00
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Dortmund að kaupa leikmann frá Mainz
Abdou Diallo í baráttunni við Thomas Muller.
Abdou Diallo í baráttunni við Thomas Muller.
Mynd: Getty Images
Borussia Dortmund er við það að ganga frá kaupum á Abdou Diallo leikmanni Mainz.

Yfirmenn knattspyrnumála, bæði hjá Dortmund og Mainz hafa staðfest það að viðræðurnar séu langt komnar.

Abdou Diallo kemur úr akademíu Mónakó í Frakklandi en hann kom til Mainz sumarið 2017, hann virðist því ekki ætla dvelja lengi hjá Mainz þar sem hann skrifaði undir fimm ára samning síðasta sumar.

Diallo er 22 ára gamall miðvörður sem er sagður eiga að koma í stað Sokratis sem er sagður á leið frá Dortmund en hann hefur meðal annars verið orðaður við Arsenal.
Athugasemdir
banner
banner
banner