Nú er það farið að skýrast hvað lið eru á leið í 16-liða úrslitin á Heimsmeistaramótinu í Rússlandi, fjórir leikir eru á dagskrá í dag en það er komið að lokaumferðum í A og B riðlum.
í A-riðli er það ljóst að Rússland og Úrúgvæ fara áfram í 16-liða úrslitin en þessi lið mætast í dag í úrslitaleik um toppsætið í riðlinum. Á sama tíma fer fram leikur í sama riðli þar sem Sádí-Arabía og Egyptaland mætast.
Spánn og Portúgal eru bæði með fjögur stig eftir fyrstu tvær umferðinar, Íran er með þrjú stig og Marokkó er úr leik stigalaust á botinum, þessi lið leika í B-riðli.
Íran mætir Portúgal í dag og á sama tíma mætast Spánn og Marokkó.
Leikir dagsins:
A-riðill
14:00 Rússland og Úrúgvæ (RÚV)
14:00 Sádí-Arabía - Egyptaland (RÚV2)
B-riðill
18:00 Íran - Portúgal (RÚV2)
18:00 Spánn - Marokkó (RÚV)
Athugasemdir