Ísland - Króatía á morgun
Jóhann Berg Guðmundsson æfði með íslenska landsliðinu á leikvanginum í Roston við Don í dag. Ísland mætir þar Króatíu klukkan 18:00 annað kvöld.
Jóhann meiddist á kálfa gegn Argentínu í fyrsta leik á HM og var fjarri góðu gamni gegn Nígeríu á föstudaginn.
Fjölmiðlar fengu að fylgjast með fyrstu 15 mínútunum á æfingu Íslands í dag og Jóhann tók þar fullan þátt í upphitun og reitabolta.
Jóhann æfði með sérstakar umbúðir utan um kálfann eins og sjá má á myndinni hér til hliðar.

Allir 23 leikmenn íslenska liðsins æfðu í dag, þar á meðal Ragnar Sigurðsson sem fékk höfuðhögg gegn Nígeríu.
Hannes Þór Halldórsson, markvörður, var í séræfingum með Friðrik Ellert Jónssyni sjúkraþjálfara.
Hannes var þó með hanskana á sér og æfði með bolta. Því má reikna með að hann verði klár í slaginn á morgun.
Athugasemdir