Gylfi Þór Sigurðsson, leikmaður íslenska landsliðsins og Everton í ensku úrvalsdeildinni leiðist það greinilega að sólbrenna og hugsar því vel um húðina á meðan á Heimsmeistaramótinu í Rússlandi stendur.
Í morgun æfði hann ásamt íslenska liðinu á Rostov leikvanginum í Rostov við Don í rúmlega 30 gráðu hita.
Í morgun æfði hann ásamt íslenska liðinu á Rostov leikvanginum í Rostov við Don í rúmlega 30 gráðu hita.
Fyrir æfingu þá bar hann á sig og aðra sólarvörn til að sólbrenna ekki, en sólin hefur verið tíður gestur á leikstöðum íslenska landsliðsins á Heimsmeistaramótinu.
Ísland leikur við Króatíu í Rostov við Don annað kvöld klukkan 18:00 og miðað við veðurspár
þá má búast við því að Gylfi verði búinn að bera á sig sólarvörn fyrir leikinn.
Athugasemdir