Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
banner
   mán 25. júní 2018 06:00
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Paddy McNair á leið til Middlesbrough
Mynd: Getty Images
Norður-Írinn, Paddy McNair sem hefur leikið með Sunderland frá árinu 2016 er á leið frá félaginu eftir að liðið féll úr ensku Championship deildinni.

Sky Sports greindi frá því í gær að McNair væri búinn að semja við Middlesbrough og að félögin hafi komist að samkomulagi með kaupverð sem hljóðar upp á fimm milljónir punda.

McNair á aðeins eftir að standast læknisskoðun og samkvæmt heimildum Sky Sports mun hann fara í læknisskoðun í dag.

Sunderland hafnaði fyrr í sumar tveimur tilboðum frá úrvalsdeildar félaginu Brighton í McNair en nú virðist stefna í að hann muni spila á Championship deildinni á komandi tímabili.
Athugasemdir
banner
banner
banner